Við höfum átt frábæra helgi og deili ég því hér með ykkur people

Ég átti afm. á fimtudaginn, 24 ára kellingin. Ég fagnaði með að vinna. Börnin sungu f. mig og svo hafði mín bakað sína aðra súkk.köku á æfinni. Hún var mjög góð ótrúlegt en sagt! Um kveldið fór ég svo í kvikmyndakvöld hjá Rakel með stelpunum...bara huggó!
Hjalti var svo í krítík á föstudaginn og gekk mjög vel...við höfðum boðið í garðpartý um kvöldið og höfðum vonast eftir góðu veðri...við fengum það og rúmlega svo en það var heitasti dagur ársins! Þið sjáið svo myndir frá því hér til hliðar.
Ég fékk svo að ráða hvað var gert á laugardeginum, og fórum við því í þynkumat á Macdonalds með ósk og ella og svo beint á ströndina...mmmmm! Um kvöldið fórum við á tónleika með The Eagles sem ég fékk í afm.gjöf frá Hjalta...geggjaðir úti tónleikar í sólinni!
Núna er ég inni að fela mig frá sólinni...vorum að koma úr golfi. Vorum að slá æfingarhögg, mitt fyrsta skipti, það var eiginlega bara of heitt, 24 gráður!
Og núna á að fara að hita grillið og fá Sísí og Magga í heimsókn...
Á morgun er svo leikur hjá Hjalta og svo heimsókn til Horsens þar sem á víst að dekra við okkur, ekki slæmt!
Hjalti fer svo bara til Porto á þriðjudaginn í 9 daga, ussss! Ég fæ pabba og bræður mína í heimsókn á meðan og svo fer ég bara fra honum til Sverige þann 16. júní...og svo komum við heim í vonandi ekki kulda á klakanum...
Jæja þá vitið þið næstum allt um ferðir okkar og gjörninga...er farin í sólina!